Hirða peninga af látnum íslendingum: þú borgar skatt allt þitt líf en síðan tekur ríkið 10% af því sem þú skilur eftir þig

„Frá vöggu til grafar gjöldum við ríkinu það sem ríkinu ber. Allt frá fyrstu bleyjukaupum foreldra okkar til síðustu ráðstafana barna okkar vegna andlátsins – skal greiddur skattur af því. Skatturinn fer aldrei í frí.“

Þetta segir bakþankahöfundur Fréttablaðsins, lögfræðingurinn Haukur Örn Birgisson, í Fréttablaðinu í dag. Að hans mati er erfðafjárskattur með ógeðfelldari tekjuöflunartækjum ríkissjóðs. Haukur segir:

„Með honum þurfa erfingjar okkar, sem í langflestum tilvikum eru börn og eftirlifandi makar, að greiða skatt af því sem við eftirlátum þeim á dánarbeðinum. Tíu prósent eigna okkar, hvorki meira né minna.“

Haukur bendir jafnframt á að þeim sem auðnast að skilja eftir sig veraldlegar eigur fyrir börn sín eða maka, hafa margsinnis á lífsleiðinni greitt skatta af þessum sömu eigum. En það er ekki nóg að mati ríkisins. Haukur segir:

 „Við skulum klípa 10% í viðbót af líkinu,“ segir í lögunum – ef ég leyfi mér að umorða lagatextann örlítið.“

Nú stendur til að breyta þessu, en það er þó gert í þrepum.

„Það kemur ekki á óvart að hinir skattsjúku skuli leggjast gegn lækkuninni. Þeir segja engin rök hafa verið færð fram fyrir henni, án þess að hafa sjálfir reynt að réttlæta þennan ömurlega skatt til að byrja með,“ segir Haukur og bætir við að þeir sem berjast gegn þessari lækkun, þá muni það „kosta“ ríkissjóð tvo milljarða á ári

Bætir Haukur við að þetta sé afar undarleg nálgun en um leið klassísk. Þannig líti þeir á sem berjast gegn þessu sem að laun vinnandi fólks tilheyri fyrst ríkinu en síðan þeim sem strita fyrir þeim. Haukur segir:

„Að stjórnmálamennirnir hafi það hlutverk að útdeila laununum til fólksins, eftir að ríkið hefur tekið sitt. Ef einhverjum dettur í hug að lækka skatta þá líta hinir svo á að ríkið sé að gefa eftir sína fjármuni! Þessu er vitaskuld þveröfugt farið.“