Helgi hrafn: „ég held að maðurinn sé algjör fæðingarhálfviti“

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir að það hafi ekki átt að koma neinum á óvart hvað myndi gerast þegar hersveitir Bandaríkjamanna myndu yfirgefa landamærasvæði Tyrklands og Sýrlands. Hersveitir Tyrkja hafa nú hafið innrás inn í Sýrland, þar sem Kúrdar eru með yfirráð. Nú þegar er orðið gífurlegt mannfall vegna átakanna. Í Stóru Málunum, sem sýndur er hér á Hringbraut, sagði Helgi Hrafn að Trump væri fæðingarhálfviti, þar sem allir hefðu átt að sjá hvað myndi gerast þegar bandarískar hersveitir yfirgáfu svæðið. 

„Það var alveg vitað hvað myndi gerast. Trump fer út úr Sýrlandi með herinn og Tyrkir ráðast inn. Var hann ekki að hlusta? Fékk hann ekki minnisblaðið? En málið með Trump, ég held að maðurinn sé algjör fæðingarhálfviti, afsakið orðbragðið. En ég held hins vegar að valdamiklir menn sem eru fæðingarhálfvitar, það er auðvelt að stjórna þeim af öðrum öflum. Pútín er ekki fáviti, hann er frekar snjall. Erdogan er heldur enginn vitleysingur. Þeir vita alveg hvernig þeir eiga að koma fram við fæðingarhálfvitann Trump til þess að fá hann til að gera það sem þeir vilja að hann geri.“  

Þá sagði Helgi Hrafn einnig að Tyrkir hafi í langan tíma viljað ráðast inn í Sýrland til að taka á Kúrdunum sem þeir líta á sem hryðjuverkamenn.

„Það sem mér finnst hins vegar einkenna sögu stríða almennt er hið vanmetna afl heimska, beinlínis hugsunarleysi. Svo kemur Trump með þetta dæmi, hann ætlar að fara þarna út og segja fólkinu í Miðausturlöndum að bara redda sér sjálft, eins og hann orðaði það meira eða minna sjálfur. Það vissu allir hvað myndi gerast. Það sögðu allir að Tyrkir ráðast þá þarna inn og taka yfir Kúrdanna, eins og þeir hafa viljað gera heillengi. Þeir líta á þessa Kúrda sem hluta af PKK, sem hryðjuverkamenn og fara ekkert í grafgötur með það. Þannig er bara orðræðan í Tyrklandi.“ 

Hér að neðan má svo sjá Stóru Málin í heild sinni. Gestir þáttarins voru þeir Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata og Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG