Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Heiðrúnu Kjartansdóttur. Heiðrún er 41 árs, en síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík síðastliðinn miðvikudag.
Heiðrún, sem er 165 sentímetrar á hæð, er grannvaxin með ljóst og axlarsítt hár. Hún var klædd í bláar gallabuxur og brúnleita peysu.
Heiðrún hefur til umráða Skoda Fabia, en bifreiðin er brún að lit og skráningarnúmerið er PT-893.
Þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Heiðrúnar, eða vita hvar hún er niðurkomin, er vinsamlegast beðnir um að hafa strax samband við lögreglu í síma 112.