Fyrrverandi forstjóri alcoa sest í forstjórastól hs orku

Tómas Már Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri HS Orku. Mun hann taka við starfinu frá og með næstu áramótum. Þetta kemur fram á heimasíðu HS Orku. Þar segir enn fremur:

Tómas Már hefur starfað um árabil hjá Alcoa, þar sem hann gegndi stöðum forstjóra Alcoa á Íslandi, í Evrópu og Mið-Austurlöndum, og nú síðast frá 2014 stöðu aðstoðarforstjóra fyrir Alcoa Corporation.

Áður starfaði Tómas sem framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Norðuráli. Tómas Már er menntaður umhverfisverkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistarapróf í skipulagsverkfræði frá Cornell-háskólanum í New York.

Hann hefur setið í fjölda stjórna og var m.a. formaður Viðskiptaráðs frá 2009-2012, sat í stjórn Samtaka iðnaðarins frá 2005-2011 og hefur verið í stjórn evrópskra álframleiðenda frá 2012.