Er hægt að trúa á Guð þegar fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins með eiginkonu sem auðgaðist á skartgripasölu hefur klónað hundinn sinn?
Þannig hefst pistill þar sem Jón Trausti Reynisson leggur út af umdeildum ummælum Agnesar M. Sigurðardóttur, biskups yfir Íslandi, í pistli í Stundinni, þeim miðli sem hann ritstýrir ásamt Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur. Agnes lét þau orð falla að hér á landi hefði orðið siðrof, þegar hún var spurð hvers vegna aðeins þriðjungur þjóðarinnar treysti þjóðkirkjunni.
Pistill Jóns Trausta hefur vakið nokkra athygli, þar sem hann nýtir ummæli Agnesar eins og spegil eða öllu heldur stækkunargler til að gefa innsýn inn í firringu, spillingu, úrelta hugmyndafræði um leið og við fáum nasaþef af hrollvekjandi framtíðarsýn. Eitt af mörgum dæmum sem Jón Trausti týnir til er dómsmál Atla Rafns Sigurðssonar leikara. Hann var rekinn úr Borgarleikhúsinu eftir að sjö konur kvörtuðu undan honum og sökuðu um áreitni. Atli fór í mál og vann. Jón Trausti segir:
„Stuttu síðar komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að leikari ætti að fá greiddar 5,5 milljónir króna í bætur fyrir að hafa verið sagt upp störfum eftir að sex samstarfskonur kvörtuðu undan framkomu hans. Bæturnar voru hærri en nokkur þolandi nauðgunar hefur fengið.
Nokkrum dögum fyrr hafði ungur drengur fengið dæmdar 1,7 milljónir króna í bætur eftir að afi hans braut gegn honum kynferðislega, meðal annars þegar hann var að lesa kvöldsögu fyrir svefninn.“
Hér má lesa pistil Jóns Trausta í heild sinni.