Frábær hrókshátíð á einni afskekktustu eyju grænlands: sjáðu myndirnar

Á föstudag lauk hátíð Hróksins í Kullorsuaq, 450 manna þorpi á samnefndri eyju á 74. breiddargráðu við vesturströnd Grænlands, með sirkussýningu og fyrsta meistaramóti bæjarins í skák. Meirihluta bæjarbúa og nánast öll börnin í Kullorsuaq tóku þátt í hátíðinni, þar sem gleðin var allsráðandi.

,,Þetta var sannkölluð ævintýraferð og gekk öllum vonum framar,\" segir Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins, en félagið skipulagði hátíðina annað árið í röð, í samvinnu við heimamenn.
\"\"
Alls kyns góðar gjafir frá íslenskum vinum og velunnurum tryggðu að enginn fór tómhentur af hátíð Hróksins
 
Sirkuslistamennirnir Axel Diego og Roberto Magro voru með sirkusskóla fyrir börn og fullorðna, og slógu upp mikilli sýningu í íþróttahúsi bæjarins í hátíðarlok. Þeir voru líka í föruneyti Hróksins til Kullorsuaq í fyrra, og segir Roberto að Kullorsuaq sé einstakur staður. ,,Ég hef sýnt og kennt í flestum heimsálfum, en aldrei kynnst öðru eins og hérna,\" segir Roberto. Hann segir að jafnt ung börn sem veðurbarðir veiðimann hafi sýnt einstaka takta og hæfileika. ,,Það býr einhver galdur hér í Kullorsuaq. Og að heilt þorp taki þátt í hátíð af þessu tagi er óviðjafnanlegt.\"
 
\"\"
Áhorfendur á sirkushátíðinni lifðu sig inn í stórkostlega sýningu
 
Hrafn kenndi skák í grunnskólanum, þar sem eru um hundrað nemendur, og hann var ekki síður í skýjunum með árangurinn. ,,Við búum að heimsókninni í fyrra og þá var stofnað skákfélag í bænum. Börnin sýndu hreint undraverða leikni við skákborðið og öll voru þau jafn áhugasöm, og yndislegt að upplifa leikgleðina.\"
 
\"\"
Birgitta Kammann Danielsen, hugmyndasmiður og drifkraftur hátíðarinnar í Kullorsuaq ásamt upprennandi sleðahundi
 
Börnin sýndu líka sannarlega hvað í þeim bjó á fyrsta meistaramóti Kullorsuaq í skák, sem haldið var á fimmtudagskvöld. ,,Þau veittu fullorðnum og reyndum skákmönnum harða samkeppni og unnu af þeim ófáar skákir. Framtíðin hér svo sannarlega björt, jafnt í skák sem sirkuslistum.\"
 
\"\"
Bærinn Kullorsuaq er á samnefndri eyju á 74. breiddargráðu. Nafnið þýðir stóri þumall, og er dregið af tignarlegu bæjarfjallinu
 
Þrjátíu og tveir keppendur á öllum aldri og af báðum kynjum tóku þátt í meistaramótinu. ,,Það er eiginlega ótrúlegt. Hér í þessu litla eyþorpi voru fleiri keppendur en á meistaramóti Nuuk, með sína 18.000 íbúa,\" segir Hrafn. Það var formaður skákfélagsins í Nuuk, Ole Danielsen, sem stóð uppi sem sigurvegari, eftir æsispennandi keppni. Silfrið hreppti Thimothes Petersen og bronsið Niels Aronsen. Hinn ungi og bráðefnilegi Angunnguaq Kristensen náði bestum árangri grunnskólabarna.
 
\"\"
Fjöldi barna og ungmenna tók þátt í meistaramótinu. Hinn knái Angunnguaq Kristensen náði bestum árangri og var hársbreidd frá verðlaunasæti
 
Efstu menn fengu veglega bikara og verðlaunapeninga, sem ÍsSpor lagði til, og sigurvegarinn fékk auk þess skál úr hvalbeini eftir lista- og handverksmanninn Valgeir Benediktsson frá Árnesi í Trékyllisvík. Allir keppendur og gestir á sirkushátíðinni og meistaramótinu voru leystir út með gjöfum, enda komu liðsmenn Hróksins klyfjaðir til Kullorsuaq. Helsti bakhjarl Hróksins í þessari ævintýraferð var Air Iceland Connect, en aðrir sem lögðu lið voru m.a. ÍsSpor, KSÍ, Penninn, Air Greenland að ógleymdum fjölmörgum íslenskum hannyrðakonum. Heiðbjört Ingvarsdóttir lagði meðal annars til gnótt af böngsum sem hún hafði prjónað föt á, auk þess sem hún safnaði garni, ull og prjónavörum sem vöktu mikla lukku.
 
\"\"
Frábær tilþrif, einbeiting og ástríða á sirkussýningunni
 
Liðsmenn Hróksins heimsóttu m.a. leikskólann í Kullorsuaq með bangsa handa börnunum og ungmennin í æskulýðsmiðstöðinni fengu væna sendingu af garni og ull, enda mjög áhugasöm um hannyrðir og prjónaskap.
 
\"\"
Heimsókn í leikskólann. Hrafn færði börnunum vel klædda bangsa frá Heiðbörtu Ingvarsdóttur sem prjónaði á þá föt og skólatöskur
 
Hrafn segir að undirbúningur fyrir næstu hátíð í Kullorsuaq sé þegar hafinn. ,,Hér býr sannkölluð kraftaverkakona, Birgitta Kamman Danielsen, sem átti hugmyndina að því að við kæmum hingað með veislu í farangrinum. Hún er allt í senn viðburðastjóri bæjarins, kennari og félagsráðgjafi, og lífið og sálin í öllu sem gerist í þessum mikla veiðimannabæ. Ástríða Birgittu er hrífandi og hún sigrast á öllum hindrunum. Það er meira en að segja það að skipuleggja slíka gleðinnar hátíð á hjara veraldar.
 
\"\"
Hrafn ásamt glöðum vinningshöfum í myndlistarsamkeppninni
\"\"
Hrafn ásamt Ole Danielsen, meistara Kullorsuaq 2019, og Thimotheus Petersen sem lenti í 2. sæti
\"\"
Liðsmönnum Hróksins var hvarvetna tekið fagnandi í Kullorsuaq

 \"\"

Roberto Magro ásamt nokkrum af ungmennunum úr sirkusskólanum á lokahátíðinni. Þau sýndu ótrúlega færni

\"\"

Sirkushátíðin vakti stormandi lukku og gleði áhorfenda, sem voru svo sannarlega með á nótunum