Stefnan er tekin fram Eyjafjörð í kvöld þegar fimmti þáttur nýrrar þáttaseríu um Fjallaskála Íslands fer í loftið, en þar aka þeir Sigmundur Ernir og Björn Sigurðsson myndatökumaður upp á 900 metra háa heiðina í botni Tröllaskaga - og kynnast undrum íslenskrar eyðimerkur.
Í svolítilli lág suður af firðinum langa lúrir Laugafell, blómum skreytt vin í sandflæminu, svo rík af jarðhita að þar úir og grúir af lindum og uppsprettum sem ferðamenn nútímans og gangnamenn og útlagar fyrri tíðar hafa sótt í, sér til heilsubótar og afslöppunar, eða jafnvel lífsbjargar.
Í þættinum ræðir Sigmundur Ernir við Ferðafélagsmennina Einar Hjartarson og Ingvar Teitsson sem gjörþekkja sögu og sérstöðu Laugafellsskálanna, svo og Huldu Margréti Hauksdóttur skálavörð um lífið og starfið í efra síðastliðið sumar.
Þættirnir eru unnir í samvinnu við Ferðafélag Íslands og Fjallakofann, en að baki eru heimsóknir í Norðurfjörð, Látravík, Víknaslóðir og Hvítárnes, en í næstu viku verður svo klöngrast yfir kambinn í Hrafntinnusker og helsta litríki Íslands skoðað.