Farþegar hvattir til að mæta snemma vegna álags á keflavíkurflugvelli

Fram til loka októbermánaðar, þegar sumartímabili lýkur, má búast við nokkru álagi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli fyrir fyrstu brottfarir að morgni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia.

Eru farþegar sem eiga bókað flug milli kl. 07:00 og 09:00 hvattir til að mæta að minnsta kosti 2,5 klukkutíma fyrir brottför til að komast hjá aukinni bið í innritun og öryggisleit. Innritun og öryggisleit opnar kl. 04:00 alla morgna á Keflavíkurflugvelli.

Ástæða þess að álag verður á þessu tímabili er sögð vera að breyting hefur orðið á dreifingu ferða flugfélaga og hafa ferðir sem áður voru áætlaðar seinna um morguninn verið færðar í þennan fyrsta brottfararhluta dagsins.