Svo yfirgengilegur hefur draugagangurinn verið í elsta skála Ferðafélags Íslands í Hvítárnesi á Kili að fólk hefur flúið þaðan unnvörpum, jafnt kvölds og morgna og um miðjar nætur, margt með þá tilfinningu innanbrjósts að verið sé að kyrkja það.
Þetta má ítrekað lesa úr dagbók skálans þar sem Íslendingar og útlendingar segja frá hræðilegum minningum sínum úr þessum alfriðaða skála í ármynnisláginni við Hvítárvatn - og sögur þessar fá fjaðrir í nýjasta þættinum af Fjallaskálum Íslands sem frumsýndur verður á Hringbraut í kvöld klukkan 21:30, en þáttunum, sem eru framhald seríunnar frá síðasta ári, hefur verið einstaklega vel tekið, enda sagðir veisla í máli og myndum.
Í þættinum frá Hvítárnesi er rætt við Ólaf Örn Haraldsson, forseta Ferðafélags Íslands sem var skálavörður á Kili á unglingsaldri, svo og hjónin Leif Þorsteinsson og Sigríði Friðgeirsdóttur sem voru við skálavörslu á milli jökla síðastliðið sumar. Þá er land lagt undir fót, eins og nærri má geta - og haldið sem leið liggur að Hagavatni til að skoða fossaröðina úr því og þaðan haldið í Kerlingarfjöll til að njóta litríkisins í Hveradölum.
Loks prófar umsjármaður að gista í skálanum til að athuga hvort hann verði var við reimleika í Hvítárnesi - og verði flæmdur þaðan burt - og fæst svarið í þáttalok.