Dagskrá: 17.júní á akureyri

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní skipar háan sess í hugum Akureyringa sem og allra landsmanna. Mikið er um dýrðir í bænum og hefst hátíðardagskrá klukkan 13 í Lystigarðinum. Þaðan er farið í skrúðgöngu niður í miðbæ þar sem boðið er upp á fjölskylduskemmtun um daginn og svo aftur um kvöldið og fram að miðnætti. 

Dagskrá lýkur með marseringu nýstúdenta Menntaskólans á Akureyri á torginu um miðnætti. Skátafélagið Klakkur hefur séð um skipulag hátíðarhaldanna á Ráðhústorgi síðan 2008.

Dagskrá Þjóðhátíðardagurinn 2019: 

Kl. 13-13.50: Hátíðardagskrá í Lystigarðinum

Lúðrasveit Akureyrar. Stjórnandi: Sóley Björk Einarsdóttir.

Fánahylling og hugvekja. Séra Jóhanna Gísladóttir.

Kvennakór Akureyrar. Stjórnandi: Petra Björk Pálsdóttir.

Ljóðalestur: Anna Kristjana Helgadóttir ungskáld.

Hátíðarávarp: Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri.

Ólafur Traustason syngur og leikur af fingrum fram.

Kl. 14: Skrúðganga frá Lystigarðinum að Ráðhústorgi

Lögregla, Lúðrasveit Akureyrar og Skátafélagið Klakkur leiða gönguna.

Kl. 14-16: Fjölskyldu- og hátíðardagskrá á Ráðhústorgi

Leikhópurinn Lotta kynnir hátíðardagskrána.

Lýðveldiskaka í tilefni 75 ára afmælis lýðveldisins.

Ávarp fjallkonunnar.

Nýstúdent flytur ávarp

Steps Dancecenter

Tónlistaratriði: DayDream, Embla Sól og Anton Líni.

Skátatívolí frá kl. 14-17.

Kl. 21 til miðnættis: Kvölddagskrá á Ráðhústorgi

Tónlistaratriði: Særún Elma, Embla Björk, Dana Ýr, Tumi og Birkir Blær.

Vandræðaskáldin gera grín 

Hvanndalsbræður halda uppi stuðinu frá kl. 23 til miðnættis.

Kl. 23.30: Marsering nýstúdenta frá Menntaskólanum á Akureyri