Blá ljós blikkuðu fyrir utan fæðingardeildina: átti að neyða ólétta 26 ára konu í flug - gengin 9 mánuði - konan í áfalli og læknar aldrei upplifað annað eins

 „Í kvöld um 18:00 mætti lögreglan í lokað úrræði Útlendingastofnunar fyrir fjölskyldur, konur og fylgdarlaus ungmenni og ætlaði að handtaka unga fjölskyldu frá Albaníu. Fjölskyldan samanstendur af ungu pari og 2 ára barni, en konan er einnig kasólétt, komin á 35-36 viku. Parið hefur ekki fengið svar frá kærunefnd Útlendingamála í hendurnar og því gæti verið að máli þeirra sé ekki lokið.“

Þetta kemur fram á Facebook-síðu No Borders en samtökin sem meðal annars berjast gegn brottvísun flóttamanna gagnrýna Útlendingastofnun og yfirvöld harðlega. Þar er greint frá því að lögreglan hafi birst óvænt og án fyrirvara til að handtaka fjölskylduna og vísa þeim úr landi í fyrramálið. Á síðu samtakanna segir:

„ ... varð konan fyrir miklu stressi og byrjaði að blæða mikið úr nefi. Þau báðu þá um að fara á spítalann em lögreglan leyfði með þeim orðum að þeir myndu sækja þau klukkan fimm í nótt fyrir brottvísunarflugið.“

Þá segir einnig á síðu No Borders:

„Myndin er tekin á meðgöngudeild þar sem ljósmóðir metur ástand hennar. Þar sem við sátum og hlustuðum á hraðan hjartslátt bumbubúans blikkuðu blá ljós inn um gluggann. Lögreglan beið beint fyrir utan með ljósin á og fór ekki fyrr en um 23:00 leytið.“

Læknar á Landspítalanum gripu að sögn samtakanna í taumana. Þar segir einnig:

„Konan er komin út af mæðradeild þar sem hún fékk vottorð með upplýsingum um hversu langt hún væri gengin og að ekki væri mælt með að hún myndi fljúga.

Venjulega þegar óléttar konur fljúga þurfa þær að fá svokallað „fit to fly“ vottorð en engin fordæmi voru hins vegar fyrir að gefa „not fit to fly“ vottorð þar sem enginn læknanna hafði upplifað það áður að verið væri að neyða ólétta konu í flug gegn vilja hennar.

Vonast er til að þetta vottorð hafi eitthvað að segja, en nú er hún á leið heim til sín þar sem lögreglan bíður.“