„Í október 2014 og þá vorum við með lítraverð í kring um svipað og það er núna,“ segir Runólfur Ólafsson, formaður félags íslenskra bifreiðareigenda í samtali við Vísi. Þó að samkeppnin sé orðin meiri hefur bensínverð hækkað.
Þá segir Runólfur að bíleigendur geti sparað sér allt að sjötíu þúsund krónur á ári með því að versla við ódýrustu olíufyrirtækin á markaðinum.
Runólfur bendir á að á þeim tíma hafi kostnaður á heimsmarkaði á hvern lítra verið átta til níu krónum hærri. Runólfur segir:
„Þannig að álagningin er svipuð þannig við erum að sjá að mismunurinn er hækkun skatta á þessu tímabili.“