„Honum var eiginlega stolið, það er ekki þægileg tilfinning. Ég get alveg viðurkennt það hérna fyrir hlustendum að ég varð alveg hvítur í framan, þetta var allt eitthvað svo steikt allt saman,“ sagði Auðunn í þættinum Brennslan á útvarpsstöðinni FM957 en Viðskiptablaðið greindi frá. Instagram reikningi Auðunn Blöndals, eða Audda Blö eins og hann er oftast kallaður var stolið á dögunum. Þá virðist sem hakkarinn hafi einnig komist inn í pósthólf hans.
„Þá bara kom eins og það væri búið að logga mig út, og ég fer inn, og ætlaði að fara í gegnum facebook eins og ég geri oft, því ég mundi ekki alveg lykilorðið, þá kom bara nýr reikningur sem var Blöndal Auðunn, með mynd af mér, engan follower, ekki að followa neinn, og engar myndir. Ég bara wtf, vissi ekkert hvað er að gerast, þá var þetta það vel gert hjá þessum hakkara að hann eyddi mér út af mínum eigin reikning, bjó til nýjan reikning fyrir mig,“ sagði Auðunn.
Auðunn leitaði til tölvudeildar Vodafone og tók það þrjá klukkutíma að ná stjórn aftur á reikningnum.
„Þetta var það vel gert hjá honum að við vorum fastir uppi, eftir þrjá tíma, því hann nær einhvern veginn að komast sennilega inn á meilið hjá mér. Hann gæti hafa einhvern veginn náð að sannfæra Instagram um að ég kæmist ekki inn á meilið mitt, að því að hann var búinn að breyta meilinu á Instagramminu, breyta nafninu og henda út öllum myndum, þannig að þetta var mjög steikt.“
Gjörsamlega varnarlaus
Sagði Auðunn reynsluna vera virkilega hræðilega þar sem maður verði svo gjörsamlega varnarlaus. Komust þeir að því í þættinum að ekki sé hægt að hringja í Facebook ef svona kemur upp.
„Þetta hefði tekið mun meiri tíma, nema að konan mín þekkir einstakling í New York sem þekkir einhvern hjá Instagram, það var það sem bjargaði þessu, þá var bara hægt að tala við einhvern í síma.“
Einu upplýsingarnar sem Auðunn hafði um hakkarann var að allur reikningurinn hefði verið á arabísku. Sagðist hann hafa vonað í upphafi að viðkomandi hefði verið Íslendingur því þá hefði mögulega verið auðveldara að leysa úr málinu en eftir að hafa verið bent á að þá gæti hakkarinn lesið öll skilaboðin hans varð hann feginn að um erlendar einstakling var að ræða.
„Þá varð ég hvítur, wtf, fór að hugsa, ég var á lausu í sjö ár, hvern fjandann var ég að senda þegar ég kom fullur heim og svona drasl, þannig að þetta var hræðilegt. Ekki bara það, líka hvað þú sendir konunni, það er svo margt, þegar ég fór að hugsa þetta, sem þér finnst alveg eðlilegt að senda þegar það er milli tveggja manneskja en svo þegar einhver annar, þó það væri besti vinur minn sem kæmist í þetta og færi að lesa þetta þá væri maður alveg, oj, nei, nennirðu að hætta að lesa þetta,“ sagði Auðunn sem segist nú ekki ætla að hafa sama lykilorðið á öllum síðum framvegis.
„Eins og gaurinn frá Instagram sagði, þá er það bara fyrsta regla, af því að segjum að ég hafi verið með sama passwordið til að komast inn á Fifa, meina Playstation, ég segi Fifa því það er eini leikurinn sem ég spila þar, og segjum að það verði leki þar, og einhver sér nafnið mitt, þá getur hann farið að skoða, þá getur hann bara tékkað, virkar þetta hér, og þá kæmist hann inn á twitterinn minn á þessu, kemst ég inn á Instagramið hans og svo framvegis.“
Auðunn viðurkenndi að dagurinn var mjög erfiður og áttaði hann sig á því hversu háður hann var orðinn Instagram. Konan hans fór sama dag að hitta ljósmóður en það var settur dagur hjá þeim þennan dag. Segist Auðunn hafa verið orðinn svo heltekinn baráttunni um reikninginn að hann hafi nánast gleymt að spyrja konuna að því hvernig heimsóknin hefði gengið.
„Þetta var bara búið að yfirtaka lífið, þetta var einhvern veginn orðinn mikilvægara en barnið mitt sem er á leiðinni, þetta var ekki jafndramatísk og mér fannst þetta á tímabili í gær, en þetta var ekkert eðlilega óþægilegt.“