Ásta guðrún: ekki gjaldþrota – „að sjálfsögðu þá var mér brugðið“

Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingflokksformaður Pírata, gagnrýnir Eirík Jónsson harðlega í færslu á Facebook. Tilefnið er að Eiríkur birti frétt á vef sínum með fyrirsögninni: Pírati stefnir í gjaldþrot. Eiríkur vitnaði í tíst Ástu Guðrúnar á Twitter en þar sagði Ásta:

„Ég hef skilað inn gögnum og fór yfir mailið mitt, engin ítrekun um að ég þurfi að skila gögnum. Nei, gjaldfellum bara lánið og gerum þig gjaldþrota – það virðist vera góð leið.”

Ásta Guðrún birti ítarlegan pistil þar sem sagði:

 „Æstar fréttir! Nei ég er ekki að verða gjaldþrota enda engin ástæða til. Enda var þetta ekki ummæli um mína fjárhagsstöðu heldur um hvernig LÍN starfar sem þetta tweet fjallar um. Á þriðjudag fæ ég skilaboð um að skólagjaldalán mitt frá LÍN hefði verið gjaldfellt. 3.3 milljónir sem skyldi borgast niður á 15 mánuðum, 210k á mánuði takk.

Ég auðvitað sá strax að um mistök hefði verið að ræða, enda útskrifaðist ég. Kannski gleymdi ég að skila inn gögnum? Var ekki viss, hélt ég væri í góðu en ég er líka búin að vera mjög upptekin undanfarið, í nýrri vinnu. En að sjálfsögðu þá var mér brugðið. Ég hafði ekki fengið neina tilkynningu um að það vantaði gögn, engin samskipti um lánið fyrr en þetta email.“

Þá sagði Ásta Guðrún einnig: „Ég hugsaði, jeminn hvernig mun LÍN taka á þessu? Get ég yfirhöfuð gert eitthvað? Nei málið er að samskiptaörðugleikar LÍN við námsmenn kristallast í því að í stað þess að senda tölvupóst til að minna á skil á gögnum – þá eru sendir tölvupóstar um að lánið sé gjaldfellt vegna þess að gögn vanti eða af öðrum ástæðum. Það eru engar upplýsingar um réttindi þín sem lánþega, engar upplýsingar um kæruleiðir, engar upplýsingar um afhverju. Bara allt í einu, tölvupóstur sem segir að þú ert í stórri skuld.“

Ásta Guðrún gagnrýnir LÍN fyrir slæleg vinnubrögð. Þar snúist um að gjaldfella fyrst en síðan ræða við fólk.

„Kom á daginn að ég hafði ekki skilað inn lokaprófskírteini (fékk vinnu sama dag og niðurstöður einkunna, lífið er flókið) en um leið og það var komið í gegn féll þessi gjaldfelling niður, sem betur fer. Málið er, að það hefði ekki þurft hálft hjartaáfall fyrir mig til að skila inn skírteini. Einfaldur tölvupóstur hefðu dugað. En það var farið strax alla leið. Og mér skilst að fleiri hafi fengið svipað bréf.“

Segir Ásta að þetta hafi ekki með vinnubrögð að gera eða lög þeirra, heldur samskipti og viðhorf til lánþega. Hún segir að lokum:

„Ég er ekki að verða gjaldþrota, enda myndi það ekki þurrka út LÍN skuldina mína þar sem LÍN mun elta mig þangað til ég dey. En það er algjör óþarfi að reyna að flýta dauðdögum með óþarfa hjartaáföllum! Góðar stundir!“