Árni sigfússon minnist bróður síns: „við vorum bestu vinir alla tíð“

\"\"„Elskulegur bróðir minn, Dr. Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor og forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, varð bráðkvaddur aðfaranótt 15. júlí s.l. Hann var nýorðinn 65 ára. Þetta er okkur öllum hans nánustu reiðarslag því ekkert benti til svo skjótra endaloka.“

Þetta segir Árni Sigfússon fyrrverandi borgarstjóri í Reykjavík og bæjarstjóri Reykjanesbæjar og bróðir Þorsteins á Facebook. Þorsteinn Ingi fæddist í Vestmannaeyjum 4. júní 1954. Á vef Ríkisútvarpsins er greint frá andláti Þorsteins en þar segir að hann hafi lokið doktorsprófi frá Cambridge-háskóla í Englandi árið 1982 og fékk stöðu sem fræðimaður við Háskóla Íslands að loknu námi. Hann var prófessor í eðlisfræði við HÍ frá árinu 1989. Við stofnun Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands árið 2007 var Þorsteinn Ingi ráðinn forstjóri hennar. 

Þá kemur einnig þar fram að árið 2004 var Þorsteinn Ingi sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar og árið 2007 fékk hann rússnesku alheimsorkuverðlaunin, Global Energy Prize, fyrir framlag sitt til vetnismála

\"ÁrniÁrni Sigfússon segir: „Við Þorsteinn Ingi, stóri bróðir, fylgdumst að frá barnæsku í Vestmannaeyjum, enda ekki nema tveggja ára aldursmunur. Uppfinningar hans litu snemma dagsins ljós og þá var gott að eiga áræðinn litla bróður sem var til í láta á reyna. Við vorum bestu vinir alla tíð. Gáfur hans og hjartahlýja voru mér dýrmætur stuðningur bernsku- og unglingsár rétt eins og fram á síðustu stundu.

Hér er ekki ætlunin að þylja hið mikla framlag sem bróðir minn lagði til samfélagsins, hvernig glíma hans var að beisla þekkinguna inn í atvinnusköpun, eða þylja þær opinberu viðurkenningar sem hann hlaut. Í mínum huga eru sterkari viðurkenningar fólgnar í áhrifum hans á fólk, á okkur hans nánustu, í börnum hans og ljósinu hans í lífinu, Beggu. Ég kveð elsku bróður minn í sárum söknuði.“

Eftirlifandi eiginkona Þorsteins Inga er Bergþóra Karen Ketilsdóttir, forstöðumaður. Börn þeirra eru eru Davíð Þór, fæddur 1980, Dagrún Inga, fædd 1988 og Þorkell Viktor, fæddur 1992. Barnabörnin eru þrjú.

\"\"