Arna, laktósafría mjólkurvinnslan í Bolungarvík, hefur breytt gömgl plastumbúðunum sínum í nýjar umhverfisvænni umbúðir fyrir þykku ab mjólk sína. Pappi er aðal hráefnið í dósinni sjálfri og lokið er úr áli. Auk þess sem að plastskeið og auka plastlok eru kvödd. Við þessar breytingar minnkar plastnoktun um 85% miðað við hefðbundnar jógúrt eða skyrdósir.
„Okkar stefna er að starfa í eins mikilli sátt við umhverfið og okkur er kostur” segir Hálfdán Óskarsson, framkvæmdarstjóri Örnu. „Nýju umbúðirnar okkar eru að fullu endurvinnanlegar, þær fara með öðrum pappa í endurvinnslu þótt að í þeim sé nettur plast kross til styrkingar. Á næstu mánuðum hyggjumst við færa alla jógúrt og skyr framleiðslu okkar í slíkar pappaumbúðir auk þess að við skiptum öllum plastbökkum út fyrir pappabakka” bætir Hálfdán við.