Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, hefur óskað eftir fundi með dómsmálaráðherra til að ræða stöðu hælisleitenda í ljósi þess að barnshafandi konu var vísað úr landi síðast liðnu nótt með tveggja ára barni sínu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem biskup hefur sent frá sér. Hringbraut hefur fjallað ítarlega um málið í dag og hefur komið í ljós að læknirinn sem skrifaði upp á vottorð þess efnis að konan væri fær um að fljúga, hafi aldrei hitt konuna sjálfa.
Agnes segir það sé ólíðandi að senda barnshafandi konu burt í óvissuna. Kallar hún brottflutninginn mannréttindabrot sem gengur þvert á skilyrðislausa kærleiksskyldu kristinna manna.
„Það er ólíðandi verknaður að senda barnshafandi konu burt í óvissu og örbirgð. Það er mannréttindabrot og gengur þvert á skilyrðislausa kærleiksskyldu kristinna manna. Biskups Íslands hefur óskað eftir því að prestur innflytjenda sr. Toshiki Toma, ásamt sr. Ásu Laufey Sæmundsdóttir og sr. Evu Björk Valdimarsdóttur, sem séð hafa um þjónustu við hælisleitendur, fylgi málinu eftir.“