Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 8,7 milljarða króna á 1. ársfjórðungi 2019 eða sem nemur 1,3 prósent af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi dregist saman um 4,2 prósent frá 1. fjórðungi 2018. Frá þessu er greint á vef Hagstofunnar.
Hagstofan greinir frá því að samdrátturinn skýrist aðallega af lægri arðgreiðslum fjármálafyrirtækja. Á 1. ársfjórðungi 2018 hafi tekjufærður arður verið upp á 21,5 milljarða króna samanborið við tæpar 400 milljónir króna á 1. ársfjórðungi 2019. Ef ekki er tekið tillit til arðgreiðslna er áætlað að heildartekjur hins opinbera hafi aukist um 3,2 prósent á tímabilinu.
Þá er áætlað að heildarútgjöld hafi aukist um 8,1 prósent á 1. ársfjórðungi 2019 frá sama tímabili fyrra árs. Launakostnaður vegur þar þyngst en hann er áætlaður 34,4 prósent af heildarútgjöldum hins opinbera.