Aðstandendur ekkert heyrt frá manninum frá því á laugardag

Leitað hefur verið að erlendum ferðamanna í og við Þingvallavatn frá því s.l. laugardag, en mannlaus kajak og bakpoki fundust á floti á sunnanverðu vatninu við Villingavatn. Leitað hefur verið úr lofti, láði og legi og hefur leitin fram til þessa ekki borið árangur.

Lögreglan hefur verið í sambandi við aðstandendur mannsins sem er belgískur og hefur ekkert heyrst frá honum frá því fyrir á laugardag. Því eru yfirgnæfandi líkur á því að hann hafi siglt út á vatnið á kajaknum á laugardag og fallið útbyrðis, en strekkingsvindur hefur verið á svæðinu og aðstæður til siglinga ekki verið góðar.

Ekki er vitað hvaðan hann lagði frá ströndu og því leitarsvæðið stórt og erfitt. Búið er að sigla um vatnið allt og ganga fjörur meðfram því án árangurs.

Lögreglan hefur því tekið þá ákvörðun að bíða með frekari leit í bili en taka stöðuna aftur í fyrramálið. Kafarasveit frá sérsveit Ríkislögreglustjóra er að fara yfir möguleika á því að kafa niður að inntaki við Steingrímsstöð