Frá og með þessu hausti býðst nemendum á lokaári í meistaranámi til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi launað starfsnám. Þetta er liður í aðgerðum stjórnvalda til þess að fjölga kennurum. Samkvæmt upplýsingum frá háskólunum sem bjóða upp á kennaranám gengur mjög vel að finna starfsnámsstöður fyrir kennaranema, þar sem 96 prósent þeirra sem eftir því hafa sóst hafa þegar fengið stöðu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
„Við höfum fengið virkilega jákvæð viðbrögð við aðgerðunum sem miða að fjölgun kennara, frá skólasamfélaginu, sveitarfélögunum, kennaraforystunni og foreldrum. Aðgerðirnar voru unnar í góðu samráði og samvinna okkar er farin að skila góðum árangri að mínu mati. Það er okkur kappsmál að stuðla að öflugu skólastarfi og styrku menntakerfi – þar leika kennarar aðalhlutverkið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.
Í starfsnáminu felst að kennaranemarnir starfa við hlið reyndra kennara yfir heilt skólaár. Starfsnámið er fjölbreytt, kennaranemar sinna daglegum störfum í skólunum og kynna sér fjölbreyttar kennsluaðferðir og starfshætti á þeim námssviðum eða námsgreinum sem þeir hyggjast sérhæfa sig í.
Í tilkynningunni er starfsnámið sagður mikilvægur liður í þjálfun kennaranemanna og undirbúningi þeirra fyrir frekari störf í skólum að lokinni útskrift.
Þá er greint frá því að meðal annarra aðgerða stjórnvalda sem miða að því að fjölga starfandi kennurum eru námsstyrkir til nemenda á lokaári meistaranáms til kennsluréttinda á leik- og grunnskólastigi, auk styrkja til starfandi kennara til náms í starfstengdri leiðsögn.
Umsóknum um kennaranám fjölgaði verulega milli ára síðastliðið vor, alls um rúmlega 200 í háskólunum fjórum sem bjóða upp á kennaranám hér á landi.