Sextán þingmenn úr fimm flokkum hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar. Spurningin myndi hljóða svo:
„Vilt þú að flugvöllur og miðstöð innanlands-, kennslu- og sjúkraflugs verði áfram í Vatnsmýrinni í Reykjavík uns annar jafngóður eða betri kostur er tilbúinn til notkunar?
Já.
Nei.“
Flutningsmenn eru sjö þingmenn Sjálfstæðisflokksins, fjórir þingmenn Miðflokksins, þrír úr Framsóknarflokknum, og svo einn úr Flokki fólksins og Vinstri grænum.
Staðsetning flugvallarins hefur verið umdeild í nokkurn tíma. Í greinargerð kemur fram að sambærilegar tillögur hafi áður verið fluttur á Alþingi. Síðast árið 2017. Í greinargerð segir einnig:
Flutningsmenn halda fram að það tæki 15 til 20 ár að byggja nýjan flugvöll á öðrum stað og því sé mikilvægt að gefa þjóðinni tækifæri á að segja hug sinn.
Flutningsmenn tillögurnar vilja sjálfir að flugvöllurinn verði áfram í Vatnsmýri „svo að hann geti með sóma sinnt hlutverki sínu þannig að landsmenn allir hafi greiðan aðgang að höfuðborginni.“ Þá gegnir Reykjavíkurflugvöllur mikilvægu öryggishlutverki.
Nefndinni hafa borist 21 umsögn og er meirihluti sveitarfélaga fylgjandi því að þjóðin fái að kjós. Aðeins Reykjavíkurborg er mótfallin því að Íslendingar fái tækifæri til að segja hug sinn. Þá gagnrýna flutningsmenn Reykjavíkurborg og segir málið ekki einkamál þeirra, þar sem flugvöllurinn snertir fjölda fólks á landsbyggðinni.