Hallgrímur feginn að vera laus við Ögmund: „Svona hefur Ömmi alltaf verið“

Hallgrímur Helgason rithöfundur er ekki mikill aðdáandi Ögmundar Jónassonar, fyrrverandi ráðherra og þingmanns VG.

Hallgrímur gerði pistil á heimasíðu Ögmundar að umtalsefni á Facebook-síðu sinni á dögunum en þar gagnrýndi Ögmundur viðbrögð sumra við innrás Rússa í Úkraínu.

Snerist gagnrýni Ögmundar meðal annars að því að rússneskum ferðamönnum væri úthýst af hótelum, listviðburðum rússneskra listamanna væri aflýst í Bandaríkjunum og í Evrópu og þá væri tónleikum aflýst, þar sem tónverk eftir löngu liðin rússnesk tónskáld væru á dagskrá. Þá hafi Rússum verið meinuð þátttaka í Eurovision.

„Þá vaknar spurningin hver tilgangurinn sé. Að sýna andstyggð á gjörðum rússneska ríkisins með því að niðurlægja rússneska þegna? Að vonast til að þrýstingur af þessu tagi snúi Rússum til andófs gegn  eigin stjórnvöldum? Að senda þau skilaboð að brottrekstur Rússa úr Evrópuráðinu, nefndum Sameinuðu þjóðanna og öðrum alþjóðastofnunum sé lexía til að læra af?,“ sagði Ögmundur í grein sinni.

Hallgrímur gefur skrifum Ögmundar ekki háa einkunn og segir hann að samúð hans sé öll með rússneskum listamönnum sem missa af giggum og rússneskum ferðamönnum sem verða fyrir aðkasti.

„Hann er ekkert að missa svefn út af morðum á saklausum borgurum í Kharkiv og Mariupol. Þetta er svona grein sem sprettur af hvötinni: Hvernig get ég stutt Pútín án þess að segja það hreint út?“

Hallgrímur endar færsluna sína á þessum orðum:

„En svona hefur Ömmi alltaf verið, honum tekst alltaf að setja prik í tannhjól baráttunnar, tekst alltaf að finna vondu hliðina á góðum málunum og góðu hliðina á slæmu málunum. Mikið er nú gott að vera laus við hann og Ólaf Ragnar (annan rússavin) úr stjórnmálunum.“