Ásu Ninna ældi nánast vegna blinds stefnumóts: „Ég þekki þig nú bara sem Mæju frænku“

Stefnumótadrottningin Ása Ninna Pétursdóttir, sem stendur að baki þáttunum Fyrsta blikið sem eru á dagskrá Stöðvar 2, segir að það hafi einu sinni komið upp atvik við gerð þáttanna sem varð til þess að henni varð flökurt. Þættirnir snúast um að para fólk saman og láta þau hittast á blindu stefnumóti.

Alls hafa 1.200 manns hafi sótt um að vera með í þættinum og geta því ekki allir komist að. Mikil vinna fer í að para fólk saman og ræddi hún það í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun þar sem Heimir Karls og Gulli Helga spurðu hana út í uppákomur, þar á meðal hvort það hafi komið fyrir að hún hafi óvart parað saman frændfólki.

Ása Ninna sagði: „Í síðasta þættinum, þá kom þetta upp. Þá segir maðurinn: „Ég þekki þig nú bara sem Mæju frænku“…“

Heyrist í Heimi: „Neeeei!“

Ása hélt áfram: „Svo héldu þau áfram og þá sagði hún: „Já þáttastjórnendurnir vita náttúrulega ekki af þessu“. Ég þurfti næstum því að æla ég var svo stressuð,“ segir hún. „Svo kom í ljós að hann þekkti hana sem Mæju frænku vinar sína. Þau voru þau einu sem höfðu eitthvað þekkst.“