Atvinnulífið
Þriðjudaga kl. 20.30 - Stjórnandi þáttarins er Sigurður K. Kolbeinsson
Um þáttinn: Þátturinn fjallar á fræðandi hátt um starfsemi fyrirtækja á Íslandi. Forsvarsmenn þeirra fyrirtækja sem heimsótt eru ganga um höfuðstöðvar sínar ásamt þáttastjórnanda og sýna hvernig hjól atvinnulífsins snúast, hvað starfsfólk hefst við hverju sinni og hvernig vörur og þjónusta verða til. Ekki er fjallað um rekstrarafkomu eða efnahagsspár heldur verður fyrst og fremst leitast við að fræða áhorfandann um það sem gerist inni á framleiðslugólfi, á skrifstofunni eða úti á plani.