Daniel Coats, yfirmaður leyniþjónustumála Bandaríkjanna, kom við á Íslandi á leið sinni yfir Atlantshafið. Átti hann stuttan fund með Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra þar sem þeir ræddu öryggismál í víðu samhengi, meðal annars á norðurslóðum. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þar er haft eftir Guðlaugi:
„Það er til marks um vaxandi góð samskipti Íslands og Bandaríkjanna að yfirmaður leyniþjónustumála Bandaríkjanna komi til fundar við okkur á þessu stutta stoppi sem hann átti hér.“
Fyrr í júní fór fram fyrsti fundurinn í reglubundnu efnahagssamráði ríkjanna og síðar í mánuðinum munu embættismenn halda áfram viðræðum um viðskipti og fjárfestingar milli ríkjanna.