„Það er ánægjulegt að dómstólinn hafi ákveðið að taka málið til meðferðar og það er einsdæmi í Íslandssögunni að mál hafi verið tekið þetta hratt og örugglega fyrir,“ segir Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður. Vilhjálmur er verjandi manns sem stefnt var fyrir Landsrétt eftir að dómstóllinn tók til starfa. Vilhjálmur taldi setu Arnfríðar Einarsdóttur í dóminum í kjölfar skipunar dómsmálaráðherra í dómarasæti við Landsrétt, þvert á niðurstöðu hæfisnefndar, brot á lögum og ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu.
Nánar á mbl.is;
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/06/30/yfirlysing_radherra_barnsleg_oskhyggja/