Hringbraut greindi frá því í gær að hluti af hóp sem hefur hvað mest gagnrýnt þriðja orkupakkann hittist á laugardögum í höfuðstöðvum Decode. Þar sagði að hópurinn hafi fengið til liðs við sig einn reyndasta almannatengil landsins, Gunnar Stein Pálsson. Þá sagði að ljóst væri að hópurinn ætlaði sér stóra hluti með tilkomu Gunnars Steins og til stæði að undirbúa stórsókn þar sem skrifaðar verða blaðagreinar, bloggfærslur og pistlar á samfélagsmiðla.
Í fyrirsögn sagði: Andstæðingar orkupakkans hittast á leynifundum í Decode: Leggja á ráðin hjá Kára með Gunnari Steini. Með fyrirsögn átti blaðamaður við að hópurinn væri að leggja á ráðin í húsi Kára, enn ekki með Kára. Þetta væri hægt að misskilja og hefur fyrirsögn því verið breytt. Hér fyrir neðan má lesa yfirlýsingu Kára.
Af tilefni greinarstúfs sem birtist á Hringbraut í gær um andstæðinga þriðja orkupakkans:
Í stúfnum segir að andstæðingar þriðja orkupakkans haldi fundi sína með Kára Stefánssyni í húsi Íslenskrar erfðagreiningar. Staðreyndin er sú að ég hef ekkert með þá fundi að gera enda eru sellufundir af þeirri gerð heldur hvimleiðir. Það hefur hins vegar myndast sú hefð að Íslensk erfðagreining láni tvo sali í húsi sínu sem eru utan öryggishliðs til alls konar fundarhalda endurgjaldslaust. Í láni á sölunum felst hvorki stuðningur íslenskrar erfðagreiningar né minn persónulegur stuðningur við það sem sagt er eða gert í sölunum meðan þeir eru í láni. Til dæmis höfum við lánað sali okkar til alls konar félaga fólks með alls konar fatlanir. Þegar ég gekk framhjá opnum dyrum annarra salanna, Tjarnarsalnum, klukkan 17:45 um daginn og sá sitja við borð ýmsa af þeim sem taldir eru upp í greinarstúfnum dró þá ályktun að um væri að ræða félag fólks með einhvers konar fötlun þótt ég væri ekki alveg viss um hver hún væri. Mér sýndist hins vegar úr mörgu að velja.
Kári Stefánsson.