Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir það koma til vel til greina að skoða hvort stöðva þurfi frekari vöxt eldis á frjóum laxi. Á þeim forsendum að vernda villta laxastofna. Þorgerður Katrín segir þetta þó velta á því hvort sú stefnumörkun sem nú er unnið að vegna fiskeldis hafi tilætluð áhrif með tilliti til náttúrverndar. Frá þessu er sagt nánar á vef RÚV.
Fyrirhugað er að margfalda laxeldi í sjó við Ísland í nánustu framtíð. Laxeldi í sjó er umdeilt ekki hvað síst vegna mikillar meintrar hættu á erfðablöndu eldislax og villtra laxastofna. Vaxandi lyfjanotkun í laxeldi og aukin tíðni sjúkdóma í eldislaxi í sjó er að sama skapi talin skapa hættur fyrir lífríki sjávar og ferksvatns. Mikil mengun er sögð stafa að sjókvíaeldi á laxi. Talið er að tíu þúsund tonn af eldislaxi í sjókvíum fylgi álíka mengu og stafar frá 150 þúsund manna byggð. Þessari staðhæfingu ber að taka með fyrirvara.