WOW Air hyggst taka allt að tólf milljarða lán. Samið hefur verið við norska verðbréfafyrirtækið Pareto Securities um að hafa umsjón með skuldabréfaútboðinu og á það að klárast á allra næstu vikum. Meðal annars má lesa frétt um þetta á vef Rúv.
Pareto er einn helsti ráðgjafi við skuldabréfaútboð á Norðurlöndum og hefur síðustu misseri meðal annars haft umsjón með slíkri fjármögnun fyrir Icelandair og Norwegian air. Í drögum að fjárfestingakynningu Pareto vegna útboðsins segir að skuldabréfaútgáfan sé hugsuð sem brúarfjármögnun fram að áformuðu frumútboði WOW air innan næstu 18 mánaða. Þá hyggst flugfélagið sækja sér nýtt hlutafé og yrði í kjölfarið skráð á markað en í dag er Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, eini hluthafi félagsins.