Julian Assange fær að búa áfram í sendiráði Ekvador í Lundúnum. Þetta er haft eftir Lenín Moreno nýkjörnum forseta Ekvador en hann hefur verið harorður WikiLeak. Lenín Moreni hefur varað Julian Assange við því að reyna að hafa áhrif á stjórnmál í Ekvador.
Julinan Assange er létt við þessi tíðindi. Hann segist saklaus af ákærum um kynferðisbrot. Horfur voru á að Julian Assange yrði framseldur til Svíþjóðar þar sem hann var kærður.
Sjálfur óttast hann mest að vera framseldur til Bandaríkjanna þar sem réttað yrði yfir honum fyrir leka á trúnaðargögnum. Svíar hættu rannsókn á máli Julina Assange fyrir nokkru en Bandaríkin gefa ekkert eftir og krefjast þess að hann verði framseldur.
rtá