Vog­un­ar­sjóður með yfir 10% í sím­an­um

Vog­un­ar­sjóður­inn Eaton Vance Mana­gem­ent hef­ur bætt við hlut sinn í Sím­an­um og er nú kom­inn með yfir 10% eign­ar­hlut. Sjóður­inn bætti 30 millj­ón­um hluta við eigna­safn sitt á fimmtu­dag­inn, en gengi Sím­ans í lok vik­unn­ar var 4,17 krón­ur á hlut. Sjóður­inn keypti því í fé­lag­inu fyr­ir um 125 millj­ón­ir. Sjóður­inn hef­ur jafnt og þétt bætt við sig, en í sept­em­ber fór hlut­ur hans upp í 6,58%.

Eaton Vance Mana­gem­ent hef­ur verið að stækka um­svif sín hér á landi upp á síðkastið. Um mitt sum­ar jókst hlut­ur hans í Hög­um upp í rétt rúm 5% og 8,76% í VÍS. Þá á sjóður­inn 5,57% hlut í fast­eigna­fé­lag­inu Reit­um og 5,54% í Reg­in.

Eaton Vance Mana­gem­ent sam­an­stend­ur af sex sjóðum, Global Opport­unities Port­folio, Global Macro Port­folio, Global Macro Ab­solu­te Ret­urn Advanta­ge Port­folio, JNL/​​​​​Eaton Vance Global Macro Ab­solu­te Ret­urn Advanta­ge Fun, Pacific: IG­PAC­SEL/​​​​​Pacific Select Fund Global Ab­solu­te Ret­urn Fund og PF Global Ab­solu­te Ret­urn Fund.

Þetta kemur fram á mbl.is