Áberandi hugarfarsbreyting hefur orðið meðal almennings í flokkun heimilissorps hér á landi á síðusti tíu árum - og þá vekur ekki síður athygli hvað fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum eru farin að taka sér ærið tak í þessum efnum.
Þetta kemur fram í máli Hildar Magnúsdóttur, gæðastjóra Íslenska gámafélagsins í sjónvarpsþættinum Heimilið á Hringbraut í kvöld, en þar kennir hún áhorfendum að flokka sorp og segir frá því hvað verður um það hjá kaupendum þess á meginlandi Evrópu.
Íslenska gámafélagið rekur starfsstöðvar hringinn í kringum landið - og segir Hildur að víða í bæjarfélögum hér á landi séu íbúar afar stoltir af því framsækna flokkunarkerfi sem þar er til staðar. Vissulega hafi margir efast í fyrstu þegar breytingarnar voru að ganga yfir, en nú ríki þar ánægjan ein - og stoltið.
Heimilið byrjar klukkan 20:00 í kvöld, en þar er fjallað um fasteigna, húsnæðis- og skipulagsmál, svo og allt sem viðkemur rekstri heimilisins.