Uppgangur þröngsýni, sérhagsmuna, verndar- og einangrunarhyggju og popúlisma lætur Ísland og íslenska pólitík og þjóðmálaumræðu ekki ósnortna. Sömu lögmál eiga við hér á landi sem annars staðar. Búið er til ímyndað vandamál, það gert að brýnu úrlausnarefni, óvinur fundinn og síðan bent á einfaldar lausnir sem felast í því að skilja okkur frá þeim, hinum illu öflum sem sækja að frelsi, fullveldi og tilveru okkar. Tilgangurinn er að ná völdum, tilgangurinn er að klekkja á pólitískum andstæðingum, tilgangurinn er að koma hinum réttsýna flokki með sterka leiðtogann til valda til þess að leiða hnípna þjóð í vanda til fullveldis og sjálfstæðis og verjast þannig ágengum ríkjum, þjóðum og fyrirtækjum sem ræna fjöreggi okkar og brjóta.
Bretar og Brexit
Stjórnmálaástandið í Bretlandi og Brexit-málið eru nærtæk og skýr dæmi um hvernig getur farið þegar popúlistar gera sig gildandi og ekki er tekið á málum með skynsemi og yfirvegun. Sagan geymir allt of mörg dæmi um að frjálslynd öfl hafi sofið á verðinum og hörfað undan ágangi popúlistanna og oftar en ekki með hörmulegum afleiðingum.
Breski Íhaldsflokkurinn, sem er systurflokkur Sjálfstæðisflokksins, hraktist undan popúlistum í breska sjálfstæðisflokknum UKIP og skoðanasystkinum þeirra innan eigin raða Íhaldsflokksins. Gamalkunnum brögðum var beitt – óvinurinn var fundinn í Evrópusambandinu og undan því oki yrði Bretland að brjótast hvað sem tautaði og raulaði. Cameron, formaður Íhaldsflokksins og forsætisráðherra, brá á það ráð að boða þjóðaratkvæðagreiðslu um úrsögn Breta til þess að freista þess að slá vopnin úr höndum popúlistanna, ekki síst í eigin flokki. Þar misreiknaði hann sig illilega. Þeim tókst með afar ósvífnum hætti, innantómum fullyrðingum og falsi, að knýja fram nauman sigur í þjóðaratkvæðagreiðslu og þar með að draga bresku þjóðina úr Evrópusambandinu. Brexit-ævintýrið er allt með hinum mestu ólíkindum og virðist enginn hvatamaður Brexit hafa hugsað það til enda.
Víti að varast
Fleiri fréttir
Nýjast
Náttfari
Stórmenni kveður
Dagfari
Sigurvegarar kjarasamninganna
Dagfari