Vita nú hver er eigandi bakpokans sem fannst í þingvallavatni: reyna að fá upplýsingar frá aðstandendum

Um miðjan dag í gær var tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi um undarlegan hlut á floti á sunnanverðu Þingvallavatni, nærri Villingavatni. Lögreglan fór á vettvang ásamt björgunarsveitum af svæði 3 og fannst fljótlega eins manns kajak, uppblásinn og með honum flaut bakpoki. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Við skoðun á bakpokanum kom í ljós að eigandi hans er erlendur ferðamaður sem hafði gist á tjaldsvæðinu á Þingvöllum nóttina áður.

Leitað var á og við vatnið í gærkvöld fram til kl. 22 og var leit haldið áfram nú í morgun um kl: 09. Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar leituðu í gær og munu björgunarsveitir halda áfram leitinni í dag.

Lögreglan vinnur nú í því að fá upplýsingar frá aðstandendum ferðamannsins varðandi ferðaáætlanir og plön og nýtur við það aðstoð utanríkisþjónustu Utanríkisráðuneytisins.

Lögreglan mun setja inn upplýsingar um málið hér á síðuna varðandi framvindu málsins í dag.