Vísa yfirlýsingum ragnars um annarlegan tilgang til föðurhúsanna

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hefur verið harðorður í garð stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna eftir að sjóðurinn tilkynnti um vaxtahækkun á lánum sínum til sjóðfélaga. „Fyr­ir mér er þetta í raun­inni bara stríðsyf­ir­lýs­ing sjóðsins gegn því sem við erum að reyna að vinna að. Ég get ekki séð að það sé hag­ur sjóðfélaga að búa við hátt vaxtarstig,“ sagði Ragnar við Mbl.is í gær.

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur sent frá sér tilkynningu vegna málsins og kemur þar fram að fastir verðtryggðir vextir á lánum sjóðsins hafi verið nýverið lækkaðir úr 3,6% niður í 3,4% og á sama tíma hafi breytilegir vextir verðtryggðra sjóðfélagalána hækkaðir úr 2,06% í 2,26%. Vextir á stórum hluta lána voru því lækkaðir í takt við þær áherslur sem fram komu í nýgerðum kjarasamningum og með hliðsjón af lækkandi raunvaxtaumhverfi.

„Breytilegir vextir verðtryggðra lána breytast þann 1. ágúst næstkomandi af þeirri einföldu ástæðu að þeir voru bundnir við úrelt viðmið, sem í raun þýddi að vextirnir voru orðnir óeðlilegir. Því var ákveðið að miða við ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa og samanburðarhæfra skuldabréfa, ásamt þeim vaxtakjörum sem eru á markaði, að teknu tilliti til áhættumats. Stóryrtar yfirlýsingar um að stjórn lífeyrissjóðsins hafi einungis verið að hækka vexti lána, byggja því á afar veikum grunni, svo ekki sé dýpra í árinni tekið.“ 

Í tilkynningunni kemur einnig fram að vextir sjóðsins séu með þeim allra lægstu sem bjóðast á Íslandi.

Fastir verðtryggðir vextir lána sjóðsins eru nú með þeim allra lægstu sem bjóðast á Íslandi og breytilegir vextir lána hans þeir þriðju lægstu á markaði. Á sama tíma er rétt að minna á að breytilegir vextir, þýða einmitt að þeir séu breytilegir og það eftir aðstæðum hverju sinni.“ 

Þá segir Lífeyrissjóðurinn ennfremur að sjóðnum beri skylda að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga.

Sjóðfélagar með réttindi í Lífeyrissjóði verzlunarmanna eru um 170 þúsund talsins. Lántakendur sjóðfélagalána með breytilega verðtryggða vexti eru um 3.700 talsins. Stjórn sjóðsins ber skylda til að gæta hagsmuna allra sjóðfélaga og ávaxta iðgjöld þeirra með besta mögulega hætti í þeim tilgangi að tryggja þeim sem bestan lífeyri. Það samræmist illa þessari afdráttarlausu skyldu að taka hagsmuni 3.700 lántaka fram yfir allan þorra sjóðfélaga með því að festa vexti sem eiga samkvæmt ákvæðum skuldabréfanna að vera breytilegir. Ákvarðanir um vaxtabreytingar tekur sjóðurinn ætíð með hagsmuni sjóðfélaga og lántakenda að leiðarljósi, aldrei af græðgi, geðþótta, illkvittni eða til að ganga í berhögg við kjarasamninga. Yfirlýsingum um annarlegan tilgang eðlilegra vaxtabreytinga er vísað til föðurhúsanna.“