Þingsályktunartillaga Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, þingmanns VG hefur verið dreift á Alþingi. Hún snýst um að ríkisstjórnin láti kanna stöðu og líðan barna frá efnhagshruninu.
Rósa Björg segir tillöguna í fullkomu samræmi við athugasemdir barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna (sem m.a. er komið inn á áhrif efnahagshrunsins á börn og fjölskyldur þeirra, sérstaklega efnaminni fjölskyldur. Í athugasemdum barnaréttarnefndarinnar var líka lögð áhersla á mikilvægi þess að með vænkandi hag ríkissjóðs Íslands yrði leiðréttur sá niðurskurður sem var á sviði velferðar-, heilbrigðis- og menntamála í kjölfar hrunsins.
„Nú þegar tíu ár eru liðin frá efnahagshruninu er ástæða til að kanna hvort börn hafi fengið og notið bætts efnahagsástands landsins en ekki liggur fyrir greining á stöðu þeirra barna sem eru fædd á árunum 1990–2011“, skrifar Rósa.
Og ennfremur þetta:
„Í upphafi hrunsins var mikið rætt um möguleg langtímaáhrif þess á börn. Því er full ástæða til að skoða stöðu barna á þessu tíu ára tímabili, 2008–2018, og meta áhrif hrunsins á stöðu þeirra og líðan, svo sem út frá félagslegum, sálrænum og efnahagslegum áhrifum, sem og hvar þjónusta við börn var skorin niður og hvort úrbætur hafi átt sér stað á þessu sviði. Slík könnun nær jafnframt til viðtækra þátta og þarf sérstaklega að hafa í huga ýmsar breytur, svo sem kyn, uppruna, fötlun, efnahagslega stöðu, búsetu, fjölskyldumynstur o.s.frv. Mikilvægt er að leggja mat á áhrif hrunsins á börn og grundvallarkerfi þjóðfélagsins, m.a. í velferðar-, heilbrigðis- og menntakerfinu“, segir Rósa.