,,Ég vil afnema hina svo kölluðu 25 ára ,,reglu‘‘ við innritun nemenda í framhaldsskóla. Frá árinu 2012 hefur framhaldsskólum verið heimilt að forgangsraða umsóknum um skólavist eftir tiltekinni flokkun á umsækjendum. Einn liður í reglugerðinni sem liggur til grundvallar kveður á um að umsækjendum 25 ára og eldri, og njóta ekki forgangs af öðrum ástæðum, er raðað næstsíðast við flokkun umsókna. Margir túlkuðu þetta sem svo að framhaldsskólar landsins séu lokaðir fólki eldra en 25 ára sem hefur áhuga á bóknámi\", skrifar Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra í grein í Fréttablaðinu í dag.
Ekki hafi ráðuneytingu borist kvartanir vegna þessara takmarkana en nægt fé er til svo stefna megi frá þessari stefnu: ,,Sérstaklega í ljósi þess að framlög til framhaldsskólastigsins voru aukin um 1.290 milljónir milli 2017 og 2018 og í ofanálag eru framlög á nemanda hærri í kjölfar styttingar náms til stúdentsprófs, en framhaldsskólarnir halda þeim fjármunum sem sparast vegna styttingarinnar. Ég er þeirrar skoðunar að einfalda eigi regluverk ef ekki er þörf fyrir það. Þessi aðgerð er skref í þá átt\", segir Lilja.
,,Reglan\" var sett í tíð Illuga Gunnarssonar sem var menntamálaráðherra Sjálfstæðisflokksins og sköpuðust miklar deilur vegna þess á sínum tíma. Þessi háttur hefur því ekki verið lengi viðhafður í menntamálum verði vilji Lilju um að afnema slíkar takmarkanir gagnvart 25 ára fólki og eldra.