Vilhjálmi fórnað

Sjálfstæðismenn í Kraganum hafa fært Bryndísi Haraldsdóttur, sem hafnaði í fimmta sæti listans í prófkjöri í annað sæti og við það færast þeir niður um sæti hver; Jón Gunnarsson, Óli Björn Kárason og Vilhjálmur Bjarnason. Tvísýnt verður að teljast að Vilhjálmur Bjarnason nái þingsæti, þar sem hann verður í fimmta sæti listans.

Þetta er svar við hraklegri útkomu kvenna í prófkjörinu. Nú á Sjálfstæðisflokkurinn fimm þingmenn í þessu fjölmennasta kjördæmi landsins. Haldi flokkurinn sínu á Vilhjálmur möguleika á að halda sæti sínu, en eins líklegt er að Sjálfstæðisfólk í kjördæminu hafi í kvöld ákveðið að fórna Vilhjálmi.