Höfuðbólið og hjáleigurnar er eftirminnilegt þema í ávarpi formanns Framsóknarflokksins á fundi miðstjórnar flokksins fyrr í dag. Sigurður Ingi Jóhansson brúkaði líkingamál í ávarpi sínu. \"Einn flokkur umfram aðra flokka stjórnar landinu\" sagði Sigurðar Inga. \"Slíkt afl hefur mér sýnst að viðhengin tvö - Viðreisn og Björt framtíð - hafi ekki. Viðreisn er útíbú úr Sjáfstæðisflokknum. Björt framtíð virðist svo vera orðin útibú frá Viðreisn.\" Sigurður Ingi bætti við: \"Ríkisstjónin sem nú situr hefur því væna hægri slagsíðu\". Þar á Sigurður Ingi við að í ellefu ráðherra ráðuneyti Bjarna Bendiktssonar forsætisráðherra sitja sex ráðherrar úr Sjálfstæðisflokknum. Ekki fyrir svo löngu síðan voru níu af þeim sem nú eru ráðherrar í Sjálfstæðisflokknum.
rtá náði tali af nokkrum fulltrúum sem sæti eiga í miðstjórn Framsóknarflokksins en þau sögðu að í ávarpinu hitti Sigurður Ingi naglann á höfuðið. Sjálfstæðisflokkurinn væri \"höfuðbólið og Viðreisn og Björt framtíð hjáleigur\". Um innri mál Framsóknarflokksins vildu þau ekki ræða við rtá. Sögðu aðeins að ástandið í Framsóknarflokknum gæti verið betra.
rtá
.