Búið er að slíta kjaraviðræðum VR, Eflingar, Verkalýðsfélags Akraness og Verkalýðsfélags Grindavíkur við Samtök atvinnulífsins. Þetta var niðurstaða fundar milli deiluaðila hjá ríkissáttasemjara í dag. RÚV.is greinir frá.
Verkalýðsfélögin fjögur höfðu öll fengið heimild samninganefnda hvers félags til þess að slíta viðræðunum og hafa nú ákveðið að gera það eftir að Samtök atvinnulífsins lögðu ekki fram nýtt tilboð á fundinum.
Félögin eru reiðubúin með aðgerðaáætlun um undirbúning verkfallsaðgerða, sem þau munu leggja fyrir samninganefndir sínar og stjórnir til samþykktar strax á morgun.
RÚV greinir frá því að verði tillögurnar samþykktar munu félagsmenn kjósa um verkfallsboðanir. Samþykki félagsmenn þær verða verkfallsboðanir tilkynntar ríkissáttasemjara og SA og viku eftir að það er gert geta verkfallsaðgerðir hafist.