Stjórnendur hótela í Reykjavík berjast í bökkum við að viðhalda þjónustu í ljósi verkfalls VR og Eflingar. Sólborg Steinþórsdóttir, hótelstjóri Hótels Holts, er búin að vera á vaktinni með eigandanum síðan um miðnætti í nótt. Hún vonar að það semjist sem fyrst og hefur áhyggjur af áframhaldandi verkfalli.
„Þetta er gríðarlegt álag á okkur stjórnendur. Ég er búin að vera á vaktinni síðan á miðnætti. Eigandinn var líka með mér,“ segir Sólborg í samtali við Fréttablaðið.
Hún segir hótelið hafa þurft að fækka framboði af herbergjum til að geta veitt gestum einhverja þjónustu. Stjórnendur geti ekki unnið bæði störf VR starfsmanna og Eflingar á sama tíma.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/vi-lifum-af-einn-dag