Íslenskur leikstjóri, Hlynur Pálmason, kom sá og sigraði á Robert-prisen, verðlaunahátíð danska kvikmyndaiðnaðarins á sunnudagskvöld. Kvikmynd hans Vetrarbræður, hlaut alls níu verðlaun.
Myndin, sem er fyrsta kvikmynd Hlyns í fullri lengd, var valin besta myndin og Hlynur hlaut verðlaun fyrir bestu leikstjórnina. Elliott Crosset Hove hlaut verðlaun fyrir besta leikara í aðalhlutverki og Victoria Carmen Sonne fyrir bestu leikkonu í aukahlutverki. Auk þess vann myndin í flokkum fyrir leikmynd, búningahönnun, hljóðhönnun, förðun og kvikmyndatöku.
Hlynur sagði við athöfnina að verðlaunin væru mikill heiður og viðurkenning fyrir alla sem komu að gerð myndarinnar.
Myndin hefur vakið athygli fyrir frumleg efnistök, sérstaklega hvað varðar notkun hljóðs og var einnig verðlaunuð á alþjóðlegu kvikmyndahatíðinni í Locarno í haust. Myndin fjallar um tvo bræður og deilur þeirra við hvorn annan og vinnufélaga í kalksteinsnámu. Allt umhverfi myndarinnar einkennist af kulda og nöturleika.
Vetrarbræður var opnunarmynd RIFF í Reykjavík í október. Þá sagði Hlynur að næsta verkefni hjá sér væri kvikmynd á íslensku sem héti Hvítur, hvítur dagur.