Þegar er búið að koma athugasemdum til skrifstofu Samfylkingarinnar vegna framgöngu stuðningsmanna Guðjóns Brjánssonar, sem valinn var oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Það eru stuðningsmenn Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttir sem eru ósáttir.
Málið er allt hið viðkvæmasta og þeir sem best þekkja til þess vilja sem minnst segja. Búið er að boða til stjórnarfundar hjá Samfylkingunni á Ísafirði. Dugi það ekki til munu stuðningsmenn Ólínu funda og ákveða til hvaða aðgerða verður gripið. Svo er að heyra að ekki verði unað við úrslitin.
Guðjón Brjánsson var kjörinn til að leiða listann. Í öðru sæti varð Inga Björk Bjarnardóttir og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þingkona hafnaði í þriðja sæti.
Sem fyrr segir er erfitt að fá upp hvaða sakir eru bornar á stuðningsmenn Guðjóns. „Ýmislegt getur gerst áður en vikan er liðin,“ sagði viðmælandi.