Aðstoðar ásgeir í seðlabankanum?

 Staða aðstoðarseðlabankastjóra hefur verið auglýst laus til umsóknar.

Nafn dr. Ásgeirs Jónssonar hagfræðiprófessors við HÍ hefur verið nefnt. Hann er hámenntaður og með margháttaða reynslu sem ætla má að kæmi að góðu haldi í þessu starfi.

Dr. Ásgeir er talinn geta hleypt ferskum vindum inn í yfirstjórn Seðlabanka Íslands sem hefur orðið fyrir harðri gagnrýni vegna íhaldssamrar vaxtastefnu.