Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðegenda (FÍB) segir að álagning á eldsneyti á Íslandi sé langt um fram það sem þekkist í nágrannalöndunum.
Þetta verð Costco er sönnun þess sem vakin hefur verið athygli á af bæði FBÍ og samkeppnisyfirvöldum. Runólfur telur að Costco muni hafa umtalsverð áhrif á klassískum fákeppnismarkaði um eldnseyti á Íslandi. Önnur félög muni lækka sín verð um leið því þau vilji halda áfram að vera á þessum markaði.
Ólafur Halldórsson forstjóri Olíuverslunar Íslands segir um verðlagningu Costco á elsneyti að fyrirtækið komi inn með mjög lágt verð miðað við það sem markaðurinn getur veitt.
Áhrif þessa verða skoðuð áður en önnur fyrirtæki á eldsneytismarkaðnum taka ákvörðun um sín verð. Koma muni í ljós hvernig Costco reiðir af til lengri tíma litið en íslensk fyrirtæki á eldneytismarkaðnum vilja bjóða neytendum samkeppnishæf verð.
rtá
Nánar www.visir.is www.mbl.is www.vb.is