Raddir heyrast nú sem fyrr um að lækka þurfi vexti á Íslandi og að Seðlabanki Íslands sé blóraböggullinn í því samhengi. Málið er þó talsvert flókanara þar sem SÍ er bundinn af lögum sem segja að meginmarkmið SÍ sé að stuðla að stöðugu verðlagi og yfirlýsing SÍ og ríkisstjórnar um hvert verðbólgumarkmið skuli vera.
Ákveðið hefur verið að endurmeta peninga- og gjaldmiðlastefnu Íslands og er það vel nú þegar hagkerfið er komið langt frá brimskafli efnahagshrunsins.
Stjórnvöld hafa einnig ýmis önnur spil á hendi sé það markmið þeirra að lækka fjármagnskostnað og vaxtastig á Íslandi. Þar má nefna ábyrg ríkisfjármál og lækkun skatta. Lágt vaxtastig á ekki að vera markmið í sjálfu sér. Heldur eiga vextir að þjóna sama tilgangi og annað verð: Koma á jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar.
Nánar www.arionbanki.is