Vísitala neysluverðs hækkaði óvænt um 0,62% milli maí og júní og mælist 12 mánaða verðbólga nú 2,8% í samanburði við 2,0% í maí. Verðbólga mælist því aftur yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans.
Mæling Hagstofunnar var nokkuð yfir væntingum, en opinberar spár lágu á bilinu +0,3% til +0,4%.
Enn og aftur er það liðurinn reiknuð húsaleiga sem skýrir að mestu mun á birtum spám og tölum Hagstofunnar. Útreikningar Hagstofunnar á kostnaði við að búa í eigin húsnæði hækkaði um 1,1% milli mánaða (+0,23 prósenta áhrif).
Flugfargjöld til útlanda hækkuðu í samræmi við reynslu seinustu ára. Hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu skilaði sér inn í smásöluverð bensíns og dísilolíu.
Húsnæðisliðurinn án reiknaðar húsaleigu hækkaði.
Líklega er stærsta fréttin í tölum Hagstofunnar sú að verðbólga án húsnæðis er komin yfir 1 prósent. Vísitala neysluverðs án húsnæðis skreið rétt yfir núll í seinasta mánuði eftir samfellda verðhjöðnun síðan um mitt ár 2016.
Framlag innfluttra vara til lækkunar á ársverðbólgu hélt áfram að dragast saman, og er nú eingöngu 0,3 prósentustig. Þegar best lét seinasta sumar var framlag þessa liðar til lækkunar ársverðbólgu 2,3 prósentustig.
Lesa alla alla greininguna frá Landsbankanum hér.