Verð á gistingu stórhækkar

Verð á þjónustu hótel og gistiheimila hækkaði um 15,1% á öðrum ársfjórðungi borið saman við sama tímabil í fyrra. Þetta er mesta árshækkun síðan á öðrum ársfjórðungi 2012 þegar hækkunin nam 15,4%,“ segir greiningardeild Landsbankans.

Þar kemur einnig fram að Íslendingar eru í miklum minnihluta þegar kemur að notkun gistirýmis hér á landi, en um 86 prósent af gistinóttum ferðamanna á síðasta ári komu til vegna erlendra ferðamanna. „Þegar verðþróun hótela og gistiheimila er skoðuð útfrá sjónarhóli erlendra ferðamanna, þ.e. í erlendri mynt, sést að hækkunin á öðrum ársfjórðungi nam 26% miðað við sama tímabil í fyrra. Leita þarf aftur til fyrsta ársfjórðungs 2011 til að finna meiri hækkun. Meiri hækkun á verði gistingar í erlendri mynt en krónum skýrist af styrkingu krónunnar á undanförnum misserum.“

Meiri hækkanir það sem af er þessu ári en fyrri ár má eflaust að mestu leyti til rekja til mikillar eftirspurnar eftir gistirými á sama tíma og innlendur launakostnaður hefur hækkað verulega. „Komur erlendra ferðamanna hafa verið töluvert umfram framboð gistirýmis og hefur herbergjanýting stöðugt vaxið á síðustu árum. Aukning í komum umfram herbergjaframboð hefur leitt til þess að stöðugt fleiri ferðamenn bítast um hvert herbergi. Lengi vel var fjöldi ferðamanna á hvert herbergi á nokkuð þröngu bili í kringum 60 en núverandi uppsveifla hefur breytt þessu jafnvægi og fór hlutfallið yfir 100 á síðasta ári og hefur ekki mælst hærra.“