Þrír stjórnarþingmenn, sem allir mættu í sunnudagsumræðuna á Hringbraut í morgun, sækjast eftir áframhaldandi þingsetu í komandi kosningum.
Þingmennirnir eru Brynjar Níelsson og Vilhjálmur Bjarnason Sjálfstæðisflokki og Willum Þór Þórsson Framsóknarflokki.
Allir segjast þeir eiga erindi á þingi, erindi sem þeir telja sig eiga eftir að fylgja eftir. Vilhjálmur sagðist vita að hann geti verið leiðinlegur og aðspurður sagðist hann hafa fengið „skólastjóraádrepu“ þegar forystunni hefur þótt hann ganga of langt.