Veggjöld innheimt til 28. september

Spölur stefnir að því að afhenta Vegagerðinni Hvalfjarðargöng til eignar og rekstrar sunnudaginn 30. september 2018. Innheimtu veggjalds yrði þá hætt föstudaginn 28. september.

Stjórn Spalar hefur tilkynnt hluthöfum félagsins þessa ákvörðun sína en tekur jafnframt fram að tímasetningin sé kynnt að þeim forsendum gefnum að Ríkisskattstjóri fallist á tiltekna meðferð á skattalegri afskrift ganganna og í öðru lagi að Samgöngustofa skili fyrirvaralausri úttekt á göngunum í aðdraganda eigendaskiptanna.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið tilkynnti stjórn Spalar 7. maí að ríkið myndi ekki yfirtaka félögin sem eiga og reka göngin, líkt og rætt hafði verið um áður í samskiptum Spalar við fjármálaráðuneytið, fyrst á árinu 2009. Slík útfærsla á afhendingu ganganna hefur meðal annars áhrif á reikningshaldslegar afskriftir mannvirkisins.

Í júní 2018 leitaði stjórn Spalar álits Ríkisskattstjóra á hvernig fara skyldi með skattalega afskrift ganganna og hugsanlega skattlagningu Spalar á árinu 2018. Svar hefur ekki borist við erindinu en þess er vænst að viðunandi botn fáist í málið í tæka tíð svo unnt sé að afhenda göngin í lok september.

Spölur mun á næstu mánuðum gera upp við viðskiptavini sína: taka við veglyklum gegn 3.000 króna skilagjaldi, taka við og endurgreiða ónotaða afsláttarmiða og greiða út inneignir á áskriftarreikningum notenda veglykla.

Tilkynning Spalar er hér